Fjölbreytt samfélag á Íslandi endurspeglast í barna, foreldra og starfsmannahópnum. Börnin koma úr ólíkum fjölskyldugerðum og eru af ólíku bergi brotin. Því viljum við rækta með okkur samkennd, vináttu og virðingu hvert fyrir öðru. Við nýtum þau menningarlegu og félagslegu tækifæri sem umhverfið býður upp á og höfum skapað okkur ýmsar hefðir, hátíðir.
Markmið:
- að börnin kynnist menningararfi sínum
- að börnin læri að bera virðingu fyrir ólíkri menningu
Leiðir:
Hér hvílum við í vöggu sögu og menningar Reykjavíkur og stutt í næstu söfn; Listasafn Reykjavíkur og Listasafn Íslands, leikhús, Alþingi, Ráðhúsið, o.fl. Þjóðminjasafnið býður 4ra ára börnum í skipulagðan leiðangur og erum við vel í sveit sett til að skreppa þangað í skoðunarferðir. Við förum reglulega á bókasafnið og börnin læra að nota það.