Í Tjarnarborg er eldaður matur daglega og leggjum við ríka áherslu á að fæðið sé fjölbreytt og hollt, grænmeti með öllum mat og hráefnið ferskt. Auk þess fá börnin morgunmat og síðdegishressingu. Markmið okkar er að börnin læri almenna borðsiði og kurteisi, kennari situr til borðs með börnunum og er þeim fyrirmynd.
Börnin eru hvött til að smakka allan mat, um leið og smekkur þeirra er virtur. Börnin hjálpa við að leggja á borð og ganga frá.
Starfsfólk eldhúss Tjarnarborgar

Helga Þórisdóttir
Helga Þórisdóttir, er menntaður kokkur og hefur starfað í Tjörn síðan 2008