Tuttuguog eitt barn eru á Læk sem er „yngri deildin“ í leikskólanum. Börnin eru á aldrinum tveggja til þriggja ára. Fjórir starfsmenn starfa á deildinni auk afleysingar.
Í byrjun leikskólagöngunnar leggjum við mesta áherslu á að byggja upp traust barnsins og gera leikskóladvölina að jákvæðri upplifun. Gleði í starfinu, hlýja og jákvæðni í samskiptum eiga að veita barninu það öryggi sem það þarf á að halda. Við viljum eiga gott samstarf við foreldra og hvetjum til daglegra samskipta okkar á milli.
Viðfangsefnin í daglega starfinu eru margvísleg. Í gegn um leikinn og daglegar athafnir æfum við okkur í samskiptum og ýmisskonar færni. Þemað, ég sjálfur og mitt nánasta umhverfi er alltaf í gangi og alltaf jafn klassískt. Við viljum virkja forvitni barnsins og leikgleði, njóta þess að skoða og upplifa veröldina á sem fjölbreyttastan hátt.
Starfsfólk Lækjar

María Worms
María er deildarstjóri á Læk og hóf störf í Tjarnarborg i júní 2018. María er með diplómu í hönnun, BA í myndlist og er í MA námi í hagnýtri menningarmiðlun.
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Svanhildur Vilbergsdóttir
Svanhildur er með B.A. í myndlist og uppeldis- og kennslufræði. Svanhildur hefur unnið í Tjarnarborg síðan 2000.

Austé Lietuvaité
Austé hóf stórf í Tjarnarborg október 2021.

Arney Sigurgeirsdóttir
Arney er listdansari og hóf stórf í september 2020.

Momo Hayashi
Momo er grunnskólakennari og með BA í íslensku. Momo er í 80% starfi og hóf stórf í september 2020.